
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Formaður BSRB segir brýnt að undirbúa aðgerðir sem geti komið í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp. Ákvörðun um hvort forsenduákvæði samninga á almennum markaði verði virkjað þarf að liggja fyrir áttunda október.
Stjórnvöld í Rússlandi kölluðu sendiherra Noregs í Moskvu á sinn fund í dag eftir að rússneskt skip var kyrrsett við Svalbarða í gær. Norðmenn segjast ekki eiga beina aðild að málinu, það sé milli úkraínsks fyrirtækis, og Rússlands.
Nýtt og stærra kvennaathvarf var formlega opnað í dag. Framkvæmdastýra segir þetta ljúfsárt, þörfin og aðsóknin hafi verið mikil.
Gjaldskylda verður stytt um klukkustund á P1 og P2 svæðum í miðborginni um næstu mánaðamót. Fram að áramótum verða áhrifin af því metin og svo farið í heildarendurskoðun á gjaldskyldu, segir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar.

Fréttir