
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Ekki hefur komið til niðurfellinga á flugferðum Icelandair þrátt fyrir yfirvofandi verkfall flugvirkja sem hefst að óbreyttu á miðnætti annað kvöld. Um þrjúþúsund farþegar hafa breytt flugferðum sínum vegna aðgerðanna.
Margir flugfarþegar hafa þegar haft samband við Neytendasamtökin til þess að kanna rétt sinn. Samtökin hafa birt leiðbeiningar um hvað farþegar geti gert.
Forstjóri Sjúkratrygginga segir erfitt að una við að fjöldi sjúklinga á Vogi sé langt undir því sem samningur þeirra við SÁÁ gerir ráð fyrir. Fjöldinn þarf að lagast á næstu tveimur vikum að hans mati.
Tveir Ólígarkar með tengsl við Vladimír Pútín Rússlandsforseta voru teknir af refislista ESB í dag eftir þrýsting frá FRakklandi og Lúxemborg. Refsiaðgerðir sambandsins gegn Rússum voru framlengdar til þriggja ára.
Umsjón: Erla María Markúsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún SIgurðardóttir

Fréttir