
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Íslenskur karlmaður á fertugsaldri lést af völdum áverka sem hann hlaut í Reykjavík í nótt. Lögregla hefur lagt hald á hníf sem talinn er tengjast árásinni. Þrír eru í haldi.
Matarpöntunum til velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fækkaði um fimmtán prósent í september miðað við júlí. Verð máltíðanna hækkaði 1. september.
Sex daga vopnahlé í Kherson-héraði í Úkraínu rennur sennilega út í kvöld. Þetta er lengsta hlé á átökum frá því að Rússar gerðu allsherjarinnrás 2022.
Töluvert magn plasts berst í sjóinn frá sjókvíaeldi, samkvæmt norskum rannsóknum. Mengunin stafar bæði af plasthlutum sem losna úr eldiskvíum og örplasti sem myndast þegar fiskfóður skrapar innan úr fóðurrörum.

Fréttir.