
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir.
Innviðaráðherra íhugar að hækka krónutölu niðurgreiðslna í gegnum Loftbrú miðað við það sem tilkynnt var fyrir helgi. Gangi það eftir verða 200 milljónir aukalega settar í Loftbrú.
Talskona Stígamóta segir eðlilegt að fólki misbjóði þegar menn þurfi ekki að bera ábyrgð á skaða sem þeir valdi. Átta þúsund hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem úttektar á meðferð kynferðisofbeldismála er krafist.
Tvö dauðsföll hafa verið staðfest vegna ebólu í Kenía. Ebólufaraldur hefur geisað í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þar sem hátt í fimm þúsund hafa látið lífið.
Árleg garðfuglakönnun Fuglaverndar hófst í dag. Hún miðar að því að afla upplýsinga um fugla í görðum yfir vetrarmánuðina.

Fréttir.