
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að verkferlum hafi verið fylgt, þegar beiðni um sjúkrabíl var hafnað um helgina. Maður frá Skagaströnd hringdi beint í stofnunina og óskaði eftir sjúkrabíl eftir að hann náði ekki sambandi við Neyðarlínu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Samkeppniseftirlitið kannar enn hvort lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti fyrsta maí hafi skilað sér að fullu til neytenda. Forstjóri þess segir ótímabært að meta hvort olíufélög verði beitt sektum.
Verjendur fimm sakborninga í hoppukastalamálinu svokallaða fóru í dag fram á að málinu yrði vísað frá dómi. Meira en þrjú ár eru liðin síðan ákæra var gefin út.
Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi og bresk stjórnvöld kynntu í morgun, um samfélagsmiðlanotkun barna.

Fréttir