
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Hundruð og jafnvel þúsundir minka sluppu úr búrum sínum á Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun og margir þeirra úr húsi. Eigandi búsins telur marga hafa verið að verki.
Ming Ting Mancel hefur verið hneppt í gæsluvarðhald. Hún var sakfelld fyrir morð á dóttur sinni í öllum ákæruliðum nema einum.
Ótrúlegt þykir að kona hafi sloppið nær ómeidd eftir að hafa velt bíl á Bolafjalli og oltið niður 200 metra.
Úkraínumenn fá að framleiða bandarískar loftvarnaflaugar. Stuðningur Bandaríkjastjórnar við þá virðist vera að aukast á ný.
Allt logar innan knattspyrnuheimsins vegna áforma forseta FIFA um að selja hlut í Heimsmeistaramótinu. Evrópska sambandið fer hörðum orðum um það alþjóðlega.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Fréttir