Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Kvöldfréttir 14. maí 2026

Árásarhrina Rússa síðustu daga er sú umfangsmesta frá upphafi innrásarstríðsins í Úkraínu.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að bætt hafi verið úr ýmsu og rýnt verði í annað sem gerðar eru athugasemdir við í nýrri skýrslu um viðbragð við jarðhræringum á Reykjanesskaga.

Smábátasjómenn hafa verið samningslausir í 12 ár. Fátt bendir til þess að það breytist á næstunni þó að allir segist reiðubúnir að setjast við samningaborðið.

Hótelbókanir í Bandaríkjunum eru undir væntingum fyrir HM í fótbolta þar í sumar. Búist er við færri alþjóðlegum áhorfendum. Hátt miðaverð spilar inn í.

Nýr Bíldudalsskóli var vígður í dag en um þrjú ár eru síðan gamla skólanum var vegna myglu.

Bikarmeistarar síðustu tveggja ára í fótbolta féllu úr leik í 16-liða úrslitum keppninnar í dag. Helmingur liðanna sem eftir eru koma úr næstefstu deild.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,