
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Margt bendir til þess að minkar hafi ekki farið langt frá Dalsbúi í Mosfellsdal eftir að brotist var þar inn, að sögn yfirdýralæknis. Dýrin eru mörg hver hvolpar.
Besta veðrið um verslunarmannahelgina verður á Suður- og Vesturlandi og á Vestfjörðum. Þar er útlit fyrir bjartviðri og allt að 19 stiga hita mestalla helgina.
Stjórnvöld Í Íran vara önnur ríki við að heimila Bandaríkjunum að nota herstöðvar sínar til árása á Íran. Utanríkisráðherra landsins segir samvinnu við Bandaríkjamenn jafngilda þátttöku í stríðinu.
Verra símasamband á hálendinu er mikið til umræðu hjá ferðamönnum og fólki í ferðaþjónustu. Lokun á 2G og 3G hefur ekki bætt úr skák.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Fréttir