Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Verðbólga og samningar, slæmur aðbúnaður á Hraunbúðum, menguð peptíð og árásir á Íran

Fjármálaráðherra telur ósennilegt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi. Hann segir fátt til ráða en vonar að kaupmáttaraukning hafi jákvæð áhrif í samningaviðræðum.

Forstjóri Lyfjastofnunar segir að óþekkt óhreinindi í peptíðum sem gerð voru upptæk geti valdið miklum aukaverkunum í lifur og nýrum. Fólk eigi ekki að kaupa lyf sem það hafi ekki fengið ávísað.

Eigendur víkingaskips sem notað var í stórmyndinni The Odyssey, segja Universal-kvikmyndaverið ekki hafa greitt fyrir tjón sem varð á því við kvikmyndatökurnar. Viðgerðirnar kosta aðeins lítinn hluta þess sem kvikmyndin hefur þénað.

Kanada hefur dregið sig út úr sameiginlegri opnunarhátíð fyrir opnun Gordie Howe-brúarinnar sem tengir Ontario-fylki í Kanada við Michigan-ríki í Bandaríkjunum. Þetta gerist í beinu framhaldi af nýjustu tollatilkynningu Bandaríkjaforseta.

Umsjón: Ásrún Brynja Ingvarsdóttir

Tæknimaður: Markús Hjaltason

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,