
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Mikill eldur logar í íbúðahverfi í Drammen í Noregi. Tugir húsa hafa brunnið til grunna.
Einn var skotinn til bana í árás utan við Álaborg í Danmörku í dag. Danska lögreglan segir almenning ekki í hættu.
Það er rangt, að ekki sé um neitt að semja í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta segir prófessor við Háskólann í Reykjavík
Nýopnuð mislæg gatnamót á mörkum Reykjavíkur og Kópavogs eru gagnrýnd fyrir að liðka ekkert fyrir umferðinni. Verkfræðingur hjá Vegagerðinni biður fólk að bíða með gagnrýnina þar til framkvæmdum er lokið.
Hitabylgjan austanlands og straumur ferðamanna veldur því að fólk er hvatt til að fara sparlega með vatn á Hallormsstað.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Markús Hjaltason
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún SIgurðardóttir

Fréttir