
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Donald Trump forseti Bandaríkjanna lýsti yfir í dag að hafnbann á Íran væri komið á að nýju. Bandaríkin ætla að taka yfir Hormússund og leggja gjald á öll skip sem fara um sundið.
Sérfræðingur í málefnum Miðausturlanda segir ekki koma á óvart að vopnahlé ríkjanna hafi farið út um þúfur en telur ólíklegt að allsherjarstríð brjótist út í heimshlutanum.
Verktaki kannast ekki við að byggingafyrirtæki reki faglærða iðnaðarmenn og ráði ófaglærða til að spara byggingarkostnað. Mikið atvinnuleysi er í byggingastarfsemi.
Hótel eru þétt bókuð um allt land dagana í kringum almyrkvann tólfta ágúst. Formaður félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu hefur ekki áhyggjur af afbókunum úr þessu.
Von er á mikilli úrkomu víða um land næstu daga. Besta veðrið er áfram á Austurlandi.
Átján ára aldurstakmark hefur verið sett í útiklefum þriggja sundlauga í Reykjavík þar sem ekki er föst viðvera starfsfólks. Þetta er gert til að tryggja öryggi barna í laugunum.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Fréttir