Icelandair og flugvirkjar, Vogur og refsiaðgerðir ESB
Ekki hefur komið til niðurfellinga á flugferðum Icelandair þrátt fyrir yfirvofandi verkfall flugvirkja sem hefst að óbreyttu á miðnætti annað kvöld. Um þrjúþúsund farþegar hafa breytt…
Miklar tafir voru á umferð um Holtavörðuheiði og Hellisheiði síðdegis þar sem hjólhýsi fuku á hliðina og þveruðu vegi. Gular viðvaranir eru í gildi fram yfir miðnætti vegna hvassviðris um landið vestanvert.
Bandaríkjaforseta og Írönum ber ekki saman um hvort Hormússund sé opið eða lokað. Bandaríkjaher hóf árásir á Íran á ný í gær. Íranar hafa gert árásir á nágrannalönd sín við Persaflóa í dag í hefndarskyni.
Heildartilkynningum til barnaverndar, fyrstu þrjá mánuði ársins, fækkaði á milli ára en tilkynningum um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi fer fjölgandi.
Landsmóti hestamanna lauk í gærkvöldi á Hólum í Hjaltadal eftir vikuúthald. Fjölmörg met féllu, bæði hjá kynbótahrossum og keppnishrossum.

Fréttir