
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Kærur vegna útboða hafa tafið byggingu nýs Landspítala um hálft ár hið minnsta. Beinn og óbeinn kostnaður vegna þessa hleypur þegar á tugum milljóna króna. Málum til kærunefndarinnar hefur fjölgað mikið milli ára.
Matvælastofnun hefur til skoðunar að koma myndavélum fyrir um borð í hvalveiðiskipunum tveimur, sem viðbót við eftirlit sitt með veiðunum
Samtök atvinnulífsins gagnrýna Samkeppniseftirlitið fyrir yfirlýsingar um fákeppni á olíumarkaði.
Hluta aðstöðunnar í Laugardalslaug hefur verið lokað vegna hættu á að það hrynji úr stúkunni. Hún verður rifin -- í það minnsta að hluta.
Vatíkanið hefur bannfært um 600 þúsund kaþólikka fyrir að vígja biskupa í óþökk Leó XIV páfa.
Umsjón: Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Fréttir