
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn er á siglingu upp á við í Þjóðarpúlsi Gallups og með einu komma þremur prósentustigum minna fylgi en Samfylkingarinnar. Samfylking tapar fylgi frá í maí.
Rio Tinto á Íslandi heitir fullri samvinnu við lögreglu vegna kókaínmálsins í Straumsvík í síðustu viku.
Neysla á kókaíni hefur aukist mikið; um fjörutíu prósent fólks milli tvítugs og fjörutíu og fimm ára sem koma á Vog eru með kókaínfíkn.
Hreyfingin Áfram Ísland - vettvangur fólks sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan ESB - verður stofnuð á mánudag.
Sænskur dómstóll hefur dæmt tæknirisann Google til að greiða því sem nemur tvöhundruð og fimmtíu milljörðum íslenskra króna fyrir samkeppnislagabrot.
HM-æði hefur gripið um sig í Noregi eftir sigur í 32-liða úrslitum á heimsmeistaramótinu í fótbolta.

Fréttir