Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Björgvin Halldórssonn látinn, verðbólga, stríð, Nato og ofanflóðavarnir

Björgvin Halldórsson, einn ástsælasti og afkastamesti tónlistarmaður þjóðarinnar er látinn, 74 ára að aldri. Vinir hans og samferðamenn minnast hans á samfélagsmiðlum.

Ríkisstjórnin kynnir tímabundnar aðgerðir gegn verðbólgu á morgun. Forsætisráðherra boðar þríhliða samtal stjórnvalda við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins til að hemja verðbólgu.

Framkvæmdastjóri NATO segir Evrópuþjóðir hafa nánast án undantekninga gert allt sem Bandaríkin hafi beðið um í tengslum við stríðið í Íran. Forseti Bandaríkjanna hótaði að draga landið út úr bandalaginu.

Erfitt getur verið að greina átröskun snemma að sögn teymisstjóra átröskunarteymis BUGL. Aukið aðgengi að þjónustu vantar fyrir einstaklinga með átraskanir.

Varnarvirki réðu úrslitum í snjóflóðahrinum á norðvestanverðu landinu í mars. Stærsta snjóflóð í sextíu og átta ár féll úr hlíð ofan við Urðargötu á Patreksfirði.

Umsjón: Erla María Markúsdóttir

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Hildur Sigurbergsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,