Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Kvöldfréttir 5. apríl 2026

Samgöngur verða úr skorðum á morgun vegna óveðurs. Fólk sem hyggur á ferðalög er hvatt til að fylgjast vel með áður en lagt er af stað.

Kvöldopnun verður á skíðasvæðinu í Oddsskarði á Austurlandi. Illa hefur gengið að halda skíðasvæðinu opnu yfir páskana vegna snjókomu.

Þingmaður Miðflokksins vill auka niðurgreiðslur ríkisins vegna flugfargjalda barna sem þurfa að ferðast á milli landshluta til forráðamanna. Hann segist þekkja dæmi um að börn verði af umgengni við foreldri vegna kostnaðar við flug.

Stálþráður, með upphaflegri hljóðrás myndarinnar um Björgunarafreksið við Látrabjarg, finnst nýverið í fórum Þjóðskjalasafns Íslands eftir að hafa verið talið glatað í áratugi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,