Stríð í Mið-Austurlöndum, fiskeldi á Austfjörðum og spennandi þingkosningar í Danmörku.
Hótanir ganga á víxl milli stríðandi aðila í Mið-Austurlöndum. Bandaríkin hóta að sprengja orkuver í Íran, en Íranar hóta á móti að rústa innviðum nágrannaríkja sinna.
Kaldvík gæti þurft að hnika til fyrirhuguðum eldissvæðum í Seyðisfirði en umsvifin ættu ekki að skerða veiðirétt landeigenda, samkvæmt mati Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
Spennan eykst fyrir þingkosningar í Danmörku á þriðjudag. Flest bendir til þess að Lars Lökke Rasmussen verði í lykilstöðu við stjórnarmyndun.
Gerpla varð í dag bikarmeistari kvenna í hópfimleikum og Stjarnan vann bikarinn í karlaflokki.