Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Vatnsverndarsvæði, veður og færð, Landspítalinn, Færeyjar og ESB

Mengunarslys við Gvendarbrunna gæti valdið ferskvatnsskorti á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins mánuðum saman. Þetta leiddi æfing Veitna og Almannavarna í ljós.

Töluvert hefur snjóað á suðvesturhorninu eftir hádegi með tilheyrandi umferðartöfum. Gul veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið gildir til klukkan sjö en búist er við versnandi akstursskilyrðum fram á kvöld á fjallvegum.

Aðgerðir heilbrigðisráðuneytisins til að bæta stöðuna á Landspítalanum skila ekki afgerandi breytingum fyrr en eftir vikur eða mánuði. Ráðuneytið vonar að hægt verði að opna hundrað og þrjátíu hjúkrunarrými á næstu mánuðum.

Lögmaður Færeyja boðaði í dag til kosninga 26. mars, en þær áttu upphaflega að fara fram í desember. Stjórnin sprakk vegna ágreinings um eftirlaunaaldur og útboð jarðganga.

Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,