Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Landspítalinn, hagnaður bankanna, vopnakaup og Giséle Pelicot

Rætt hefur verið um að fresta stórum hluta skurðaðgerða á Landspítala til að leysa vanda bráðamóttöku og fjölga legurýmum. Forstjóri spítalans segir að ef önnur starfsemi ætti í hlut, væri búið að loka henni.

Íslensk stjórnvöld ætla að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu í gegnum sérstakt verkefni á vegum NATO.

Hagnaður stóru viðskiptabankanna þriggja nam rétt tæpum 94 milljörðum króna í fyrra. Fjármálaráðherra vill sjá harðari samkeppni svo eitthvað af hagnaðinum skili sér til neytenda.

„Þetta er ekki ég,“ sagði Giséle Pelicot þegar hún sá myndir sem eiginmaður hennar hafði tekið af henni meðvitundarlausri fyrsta sinni. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að nauðga henni og fá tugi manna til að gera hið sama.

Sala á óáfengum bjór hefur aukist mikið á milli ára í Frakklandi. Bjórframleiðendur leggja aukna áherslu á áfengislausan bjór og það finnst á bragðinu.

Umsjón: Erla María Markúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,