Miðflokkurinn aldrei stærri í könnun Gallups, tekist á um tekjuhlið fjárlaga í nefnd
Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og Miðflokkurinn, sem er næststærstur, hefur aldrei notið meiri hylli.
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til þónokkrar breytingar á fjárlagafrumvarpinu. Formaður hennar segir meiri átök hafa verið um tekjuhliðina en útgjöldin í nefndinni.
Leiðtogar í Evrópu eru sammála um að ekki sé hægt að ræða um frið í Úkraínu án Úkraínu.
Forseti landsins segir framhaldið ráðast eftir fund fulltrúa Bandaríkjamanna með forseta Rússlands á morgun.
Ragnhildur Gísladóttir er meðal þeirra sem fengu viðurkenningu á degi íslenskrar tónlistar.