Vaxtamál, kulnun, launaþjófnaður, Gaza og rafmagn á Norðausturlandi
Landsbankinn hefur sett móttöku nýrra umsókna um íbúðalán á bið fram yfir helgi, vegna dóms Hæstaréttar um breytilega vexti lána Íslandsbanka.
Hlutfall landsmanna með einkenni kulnunar hefur staðið í stað síðustu ár, þrátt fyrir vitundarvakningu. Yfir þriðjungur segist útkeyrður í lok vinnudags að minnsta kosti einu sinni í viku.
Sporna verður gegn ólíðandi brotastarfsemi á vinnumarkaði og útrýma henni með öllu sagði félags- og húsnæðismálaráðherra á Alþingi í dag.
Hernaðarsagnfræðingur segir vopnahléið á Gaza vera brothætt og að vilji til að láta það ganga upp skipti höfuðmáli. Samningsstaða Hamas-samtakanna er veikari eftir að gíslar voru leystir úr haldi.
Rarik hyggur á verkefni til endurbóta á raforkukerfinu á Norðausturlandi. Verkið gæti kostað á áttunda milljarð króna.