Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur
Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu…
Fimma dagsins var óvenjuleg en þar sagði Ása Berglind Hjálmarsdóttir tónlistarkona, menningarstýra og þingkona okkur af fimm töfrum sem hafa mótað líf hennar. Spjallið barst víða, t.d. inn á hjúkrunarheimili landsins og til Borgarfjarðar eystra
Svo tengdum við okkur við það sem gerðist á deginum enda er gott að fara stundum til baka þegar maður ætlar sér fram á við...

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.