Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Jenný Kristín Valberg er kona sem barðist út úr ofbeldi í nánu sambandi og nýtir nú reynslu sína til að hjálpa öðrum í gegnum starf sitt hjá Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Jenný kom í Fimmu og sagði okkur af fimm áhrifavöldum í lífi hennar og það hófst með afa hennar, Ingvari Jónssyni, sem var skipa og húsasmiður.
Í síðari hlutanum skoðum við það sem gerðist á deginum og spilum tónlist sem tengist.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.