Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Kennarar eru Sigurði Flosasyni tónlistarmanni hugleiknir en hann hefur mörgum kennt í gegnum árin. Fimman hans fjallaði um kennara sem hafa haft djúp áhrif á líf hans og leikurinn berst frá lúðrasveitum og Tónmenntaskólanum í Reykjavík til Bandaríkjanna, Indiana og New York.
Svo heiðrum við afmælisbörn dagsins og skoðum hvað gerðist á deginum

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.