Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Ein vinsælasta leikkona landsins, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, fer á kostum þessa dagana í verki Maríu Reyndal, Svikasögum. Katla Margrét kom í Fimmu til Felix og sagði af fimm lögum sem hafa fylgt henni í gegnum lífið. Þar mátti heyra bossanova og sænska baráttusöngva og svo auðvitað Katrínu Halldóru í hlutverki Ellýjar.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.