Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Fram og til baka er í sumarskapi og Fimman var send í frí fram í lok ágúst. En Felix er á sínum stað og fylgist vel með því sem er að gerast um landið og miðin. Við heyrðum af því sem gerðist á deginum, hringdum í Hilmar Oddsson og heyrðum nýtt lag með Melchior. Svo var rætt um Sumarjazz á Jómfrúnni og beina útsendingu RÚV frá tónleikum Tómasar R Einarssonar og Bogomil Font í dag.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.