Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Þjóðskrá hefur verið að koma mjög vel út úr könnunum á ánægju starfsfólks og verið meðal stofnana ársins undanfarin ár. Forstjórinn Hildur Ragnars kom í Fimmu, ræddi starfið og einnig fimm upplifanir sem breyttu lífi hennar. Hún var starfandi lyfjafræðingur en ákvað að söðla um og tók við Þjóðskrá með þessum fína árangri.
Svo kíkjum við á tónlist sem tengist deginum

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.