Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.