Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Gestur dagsins í FIMMUNNI var Nanna Hlíf Ingvadóttir tónlistarkennari og kórstjóri. Nanna talaði um fimm tónlistarkennara sem hafa haft áhrif á líf hennar og mótað. Það hófst með Jóni söngkennara í Æfingadeildinni og endaði á Kristínu Valsdóttur. Á milli heyrðum við sögur af ævintýralegri ævi.
Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður atburði dagsins og spilaði tengda tónlist

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.