Kaktus Einarsson og fimm sinnum Airwaves
Fáir hafa komið við á fleiri Airwaves hátíðum en tónlistarmaðurinn Kaktus Einarsson og það þrátt fyrir ungan aldur. Hann fór að mæta með föður sínum Einari Erni strax árið 1999 og…
Skugginn er nafn á nýrri bók rithöfundarins, náttúruverndarsinnans og handhafa Bjartsýnisverðlaunanna Hildar Knútsdóttur en hún var gestur Felix í fimmu dagsins. Fimman var auðvitað tengd bókmenntum og Hildur sagði frá fimm bókum sem höfðu áhrif á líf hennar. Þar kenndi margra grasa og sagan barst frá Þjóð bjarnarins mikla til Hobbitans með viðkomu í Isabel Allende.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.