Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur
Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu…
Strandakonan Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur er gestur Felix í fimmunni og ræðir fimm atriði sem hún hefur óttast í gegnum tíðina. Þar kemur margt skemmtilegt og mis hræðilegt við sögu! Hún ræði líka Náttúrubarnaskólann sem hún stendur fyrir á sumri hverju.
Svo heyrum við tónlist sem tengist deginum t.d. frá Tinu Turner, David Bowie, Hanson bræðrum og Hauki Morthens

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.