Mónókúltúr og Svanasöngur Selinu
Á undanförnum árum höfum við tekið eftir því að skortur er á menningarefni sem öll þjóðin sameinast um. Maður mætir ekki á kaffistofuna á þriðjudögum til að ræða nýjasta þáttinn af…
Hljómsveitin Angine de poitrine hefur vakið furðulega mikla athygli að undanförnu fyrir dansvænt míkrótóna-stærðfræðirokk og skringilega doppótta búninga. Í popplagakrufningu Lestarinnar sökkvum við okkur ofan í slagarann Sarniezz og kryfjum til mergjar.
Ryan Gosling er geimfari í Project Hail Mary og hefur myndin notið gríðarlegra vinsælda. Kolbeinn Rastrick er ómyrkur í máli í gagnrýni sinni um myndina.
Og undir lok þáttar rifjum við upp feril suðurafrísku poppdrottningarinnar Miriam Makeba.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.