Grasrótartímaritið Heyrðu, Airwaves pepp, ást og heimspeki
Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson…
Um helgina bárust þær fréttir að leikarinn og grínistinn Steinn Ármann Magnússon væri látinn, 62 ára að aldri. Steinn Ármann er þekktur fyrir hlutverk í fjölmörgum sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, leikritum og talsetningum - Kötturinn Keli í Stundinni Okkar, Sveppi í Veggfóðri, Siggi Sæti í Latabæ en hann vakti fyrst athygli sem annar hluti gríntvíeykisins Radíusbræður sem komu eins og stormsveipur inn í íslenskt grín á tíunda áratugnum.
Jón Gnarr kíkir í heimsókn og við ræðum uppistand Radíusbræðra, óheflaðan húmor og grínseríuna Limbó sem var slaufað af RÚV eftir tvo þætti.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.