Grasrótartímaritið Heyrðu, Airwaves pepp, ást og heimspeki
Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson…
Viðfangsefni þáttarins er nýtt sænskt sjónvarpsdrama sem nefnist Hundarnir. Þættirnir sem hafa fengið glimrandi dóma og gríðarlegt áhorf í heimalandinu fjalla um starfsfólk á lögmannsstofunni Matsson og Moradi í Stokkhólmi sem sérhæfa sig í að verja harðsvíraða glæpamenn. Þarna er tekist á við gengjamenningu í svíþjóð þar sem ungmenni og börn eru notuð til voðaverka, þarna er tekist á við metoo, jafnvægi vinnu og einkalífs og meltingarvandræði.
Við spjöllum við Vigdísi Häsler lögfræðing um þættina.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.