Grasrótartímaritið Heyrðu, Airwaves pepp, ást og heimspeki
Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson…
Í þætti dagsins förum við í göngutúr með Lísöndru Týru Jónsdóttur, danshöfundi og gjörningalistakonu. Hún er að undirbúa frumsýningu morgundagsins, á dansverkinu Op.5, sem verður sýnt á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Við ræðum við hana um piss, skólagöngu á meginlandinu og samband hennar við líkamann.
Haukur Már Helgason, rithöfundur, gæti brugðið hlustendum í dag. Hann heldur áfram að hugsa upphátt um tækniþróunina sem á sér stað í samtímanum.
Fríða Þorkelsdóttir ræðir við fatahönnuðina Thelmu Rut Gunnarsdóttur og Karítas Spano, um fatamerkið þeirra, Suskin.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.