Grasrótartímaritið Heyrðu, Airwaves pepp, ást og heimspeki
Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson…
Í Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi.
Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Ólátagarði eru ráðgjafar Lestarinnar í dag.
Við sökkvum okkur svo ofan í aðra seríu af rifrildisþáttunum Beef á Netflix. Nú fylgjumst við með erjum tveggja para sem starfa á ríkmannlegum golfvelli. Brynja Hjálmsdóttir segir frá.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.