Grasrótartímaritið Heyrðu, Airwaves pepp, ást og heimspeki
Á dögunum kom út grasrótartímaritið Heyrðu í fyrsta sinn. Umfjöllunarefni tímaritsins er tónlist og hefur ritstjórn blaðsíns það að aðalmarkmiði að taka tónlist alvarlega. Ish Sveinsson…
1867 nefnist ný breiðskífa með tónlistarkonunni Alaska 1867 sem kom út á dögunum. Alaska, eða Kolfreyja Sól eins og hún heitir réttu nafni, hefur vakið athygli undanfarið ár fyrir bersögla rapptexta og töffaraskap, en á nýju plötunni sækir hún í fjölbreyttari áttir en áður. Þetta er poppplata sem sækir í ýmiskonar raf- og danstónlist. Kolfreyja kemur í Lestina og ræðir hvernig málmur og vatn mótaði hljóðheim plötunnar, andspyrnuna gegn gervigreindarslori og sagnamennsku í dægurtónlist.
Við ræðum svo nokkrar verðlaunamyndir af RIFF sem lauk um helgina. Gunnar Theodór og Sigga Regína ræða La Gradiva, If Luck Will Come, Do You Love Me og fleiri.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.