Lögreglan á Suðurlandi rannsakar njósnamál og laugardagsfundur á þingi
Lögreglurannsókn er hafin á umfangsmiklum gagnaþjófnaði og njósnum fyrir rúmum áratug. Ríkissaksóknari telur möguleg brot ekki fyrnd, ef þau eru rannsökuð sem brot á persónuverndarlöggjöf.
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir að búast megi við harðari deilum um veiðigjald eftir málþóf í fyrstu umræðu. Boðað hefur verið til auka þingfundar á Alþingi á morgun.
Bandaríkin ætla að koma á fót kerfi þar sem einkafyrirtæki dreifa hjálpargögnum á Gaza. Sameinuðu þjóðirnar gagnrýna áformin og segja þau gera neyðaraðstoð að hernaðarvopni.
Nýtt öldrunargeðteymi tók til starfa við Landspítalann í síðasta mánuði. Forstöðumaður geðþjónustu Landspítalans segir að áratugum saman hafi verið skortur á sérhæfðri geðþjónustu fyrir aldraða.
Gengið hefur á með éljum á vestanverðu landinu í dag og snjóað í byggð. Garðyrkjufræðingur hefur ekki miklar áhyggjur af áhrifum ofankomunnar á sumarblómin.