Utanríkisráðherra Íslands segir Ísraela mölbrjóta alþjóðalög og fremja stríðsglæpi. Þeir verði að hleypa hjálpargögnum inn á Gaza. Ekki verði lengur við unað.
Flugliðar hjá Play felldu í vikunni kjarasamning við Íslenska flugstéttarfélagið. Formaður stjórnar flugliða hafnar ásökunum um að félagið sé svokallað gervistéttarfélag.
Veðrið lék við íbúa á stórum hluta landsins í dag. Margir skelltu sér í sjóinn við Nauthólsvík, þó fólki hafi fundist það misjafnlega notalegt.
Alls er óvíst hvar eða hvenær sovéskt geimfar sem sent var á loft á áttunda áratug síðustu aldar fellur til jarðar. Líklega gerist það á næstu dögum.
Kvennalið Fram vann sinn fyrsta leik í efstu deild í 37 ár í dag.