Tekist var á um brotthvarf lögreglustjórans á Suðurnesjum úr embætti á þingi í dag. Stjórnarandstaðan segir ráðherra ekki geta ákveðið að breyta embættinu án samþykkis Alþingis.
Áhrifa falsfrétta frá Rússlandi vegna rangra upplýsinga sem Rússar mata gervigreind á gætir hér. Allt að þriðjungur svara hennar sem tengjast Rússlandi byggist á rangfærslum samkvæmt nýrri rannsókn.
Útlit er fyrir að hægt verði að opna fjallvegi í fyrra fallinu því sérlega snjólétt er á hálendinu.
Hælisumsóknir hvítra Suður-Afríkumanna fá flýtimeðferð í Bandaríkjunum. Bandaríkjaforseti staðhæfir að þar sé framið þjóðarmorð á hvítum bændum - en það hefur ítrekað verið afsannað.
Breyta á nafni Bjargargötu í Reykjavík vegna hættu á ruglingi við Bjarkargötu en ekki gengur þrautalaust að finna henni nýtt nafn.