Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir 26. júlí 2025

Bandaríkjaforseti beitti sér í dag fyrir vopnahlésviðræðum milli Taílands og Kambódíu vegna mannskæðra átaka þar í landi. Forsetinn ýjaði því hlé yrði gert á tollaviðræðum Bandaríkjanna við löndin láti þau ekki af átökunum.

Vestfirðingar lifa í óvissu um framtíð flugsamgangna. Framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu segir hafa þurfi hraðar hendur til tryggja áframhaldandi flug til Ísafjarðar næsta haust.

Engin fylgni er á milli bólusetninga barna og einhverfu. Þetta sýnir dönsk rannsókn sem náði til um milljón barna á 20 ára tímabili.

Þúsundir eru samankomnar í Vaglaskógi á tónlistarhátíð Kaleo. Forsprakki hennar segir það algjöran draum sjá tónleikana verða veruleika.

Skipuleggjandi Druslugöngunnar segir gönguna þungbærari en áður. Hún var tileinkuð þeim sem ekki lifa af ofbeldi sem þau verða fyrir.

Frumflutt

26. júlí 2025

Aðgengilegt til

26. júlí 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,