
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið. En hvernig? Spegillinn bar það undir Trausta Jónsson veðurfræðing.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.