• 00:01:57Flokksmaskínurnar ræstar
  • 00:10:393 vikur í kosningar vestra
  • 00:19:46Hnignun hryggdýrastofna og lífríkis

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Hægt að bjóða fram til 30.október. Harris reynir að sækja atkvæði til svartra karla. Líffræðilegur fjölbreytileiki hnignar.

Það verður kosið 30. nóvember eftir að forseti Íslands féllst á beiðni forsætisráðherra um þingrof. Þetta er sú tímalína sem Landskjörstjórn hefur unnið með og þetta þýðir að flokkarnir hafa tíma til 30. október til að skila inn framboðslistum.

Það verður víðar kosið í nóvember en á Íslandi, til að mynda í Bandaríkjunum þar sem baráttan harðnar með hverjum degi. Kamala Harris reynir nú að sækja atkvæði til svartra karla með misjöfnum árangri.

Og líffræðilegur fjölbreytileiki jarðar hnignar, samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðlega náttúruverndarsjóðsins og Dýrafræðifélags Lundúnaborgar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,