• 00:00:45Greinargerð Íslands um Ísrael til Alþjóðadómstólsi
  • 00:08:14Gjaldþrot og skilasvik
  • 00:12:24Framkvæmdaáætlun Landsnets

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum, Karl Wernersson ákærður fyrir skilasvik og framkvæmdir hjá Landsneti

Fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag liggur mál um skyldur Ísraels samkvæmt alþjóðalögum til að tryggja íbúum á hernumdum svæðum í Palestínu nauðþurftir, skyldur sem Ísland líkt og meginþorri ríkja sem sendu inn skriflega greinargerð til dómstólsins telja að Ísrael sé brotlegt við.

Karl Emil Wernersson, einn umfangsmesti fjárfestir á árunum fyrir hrun, sonur hans og sambýliskona hafa verið ákærð af embætti héraðssaksóknara; Karl fyrir skilasvik en sonurinn og sambýliskonan fyrir peningaþvætti. Málið tengist gjaldþroti Karls sem er sagður hafa reynt að koma undan dýrmætum eignum.

Landsnet ætlar í framkvæmdir fyrir 120 milljarða króna á næstu þremur árum. Höfuðáherslan er lögð á að klára byggðalínuna - hringtengingu rafmagns um landið. Miklar tafir hafa orðið við undirbúning fyrir nýjar háspennulínur sem þar gegna lykilhlutverki.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,