• 00:00:30Vonbrigði að geta ekki fylgst með vændishúsi
  • 00:08:22Skemmtiferðaskipin hverfa
  • 00:15:05Staðan á stækkunarmálum ESB

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Vændi, skemmtiferðarskip og stækkun ESB

Sviðsstjóri ákærusviðs hjá lögreglunni segir það hafa verið vonbrigði þegar lögreglan fékk ekki heimild hjá dómstólum til að fylgjast með vændisstarfsemi í grónu íbúðarhverfi í Reykjavík.

Útlit er fyrir hrun í komu skemmtiferðaskipa til landsins á næstu tveimur árum ef stjórnvöld halda til streitu fyrirhugaðri gjaldtöku á þessi skip. Áhrifanna gætir hjá ferðaþjónustu og hafnarsjóðum sveitarfélaga um allt land. Sums staðar leggjast skipakomur nánast af og tekjutap hafnanna mælist í milljörðum.

Svartfjallaland gæti orðið næsta aðildarríki Evrópusambandsins, árið 2027, haldi svo fram sem horfir í aðildarferlinu. Þetta er niðurstaðan í árlegri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB um stöðuna í þeim tíu ríkjum sem eru á lista yfir umsóknarríki. Framkvæmdastjórnin segir að Georgía sé nú orðið umsóknarríki aðeins að nafninu til.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,