Það líður ekki sá dagur að ekki berist fréttir af grimmdarverkum Ísraelshers gegn almenningi á Gaza , framin að fyrirskipan ísraelskra stjórnvalda, með vopnum og stuðningi frá Vesturlöndum.
Ísraelsher hefur drepið nær 60.000 Palestínumenn frá því að nýjasti kaflinn í stríði Ísraela og Palestínumanna hófst í október í fyrra, langflesta almenna borgara og meirihlutann konur og börn.
Herinn hikar enda ekki við að gera loftárásir á íbúðahverfi, sjúkrahús, markaði, skóla og jafnvel flóttamannabúðir.
Heilu sveitirnar, þorpin, bæirnir og jafnvel borgir eru rýmd, lögð í rúst með sprengjuregni og loks jöfnuð við jörðu með stórvirkum vinnuvélum.
Þá vinna Ísraelsstjórn og Ísraelsher að því að svelta alla Gazabúa, óháð aldri, kyni og öðru, með því að hleypa nánast engum hjálpargögnum inn á Gaza og takmarka dreifingu þess litla sem inn fer við örfáar dreifingarstöðvar þar sem herinn ræður ríkjum.
Ráðamenn í Ísrael hafa líka viðrað áætlanir um að reisa það sem þeir kalla mannúðarborg á rústum Rafah-borgar syðst á Gaza, þar sem ætlunin er að koma um 600.000 Palestínumönnum fyrir til að byrja með, en fjölga þeim svo í áföngum þar til allir Gazabúar, rúmar tvær milljónir, verði vistaðir þar.
Og hér er ekki allt upp talið. Spurt er, eru Ísraelsstjórn og Ísraelsher að fremja þjóðarmorð eða þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Magneu Marínósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kormákur Marðarson