• 00:00:17Mýraeldar vöktu slökkvilið til umhugsunar
  • 00:06:16Jöklar á hröðum flótta
  • 00:12:49Íslenska óperan

Spegillinn

Leyft öllum aldurshópum

Gróðureldar, ástand jökla og íslenska óperan

Þriggja daga barátta slökkviliðs Borgarbyggðar við Mýraelda árið 2006 brýndi viðbragðsaðila í að huga sérstaklega að hvernig vinna ætti á gróðureldum, segir slökkviliðsstjórinn. Hætta á þeim eykst með lengri þurrkatímabilum og breyttri búsetu í dreifbýli. Gréta Sigríður Einarsdóttir ræðir við Heiðar Örn Jónsson, slökkviliðsstjóra í Borgarbyggð.

Á vef Veðurstofunnar segir að jökulárið 2024 - 25 hafi reynst jöklum landsins þungt í skauti, niðurstöður síðustu rannsókna sýni að þeir hafi rýrnað um 15 gígatonn - 15 milljarða tonna - á þessu eina jökulári. Hvað þýðir þetta fyrir stærð jöklanna og framtíð? Ævar Örn Jósepsson ræðir við Hrafnhildi Hannesdóttur jöklafræðing á Veðurstofu Íslands.

Íslenska óperan bauð fram sýningarrétt að ósaminni óperu um Agnesi Magnúsdóttur, væri menningarráðuneytið reiðubúið að leggja til á annan tug milljóna í veglega lokatónleika sem hún vildi halda. Þegar ráðuneytið óskaði eftir frekar skýringum á hvað fælist í slíkum sýningarrétt varð fátt um svör. Samtal er hafið um örlög Agnesar. Freyr Gígja Gunnarsson fer yfir málið.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,