
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Vatnaskil hafa orðið hjá dönskum stjórnvöldum í öryggis- og varnarmálastefnu. Danir ætla að kaupa langdræg vopn, efla loftvarnakerfi og innviði á Grænlandi. Þeir eru þó ekki einir um að setja meira fé í varnir og öryggismál því sú er þróunin víða í Evrópu.
Forsvarsmönnum í verkalýðshreyfingunni líst illa á að ríkisstjórnin vilji stytta tímabil atvinnuleysisbóta um ár og afnema áminningarskyldu hjá hinu opinbera sem undanfara uppsagnar. Þeir telja að skort hafi samráð við aðila vinnumarkaðarins.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.