Losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi og kólnun á byggingamarkaði
Rætt við Nicole Simone Keller, teymisstjóra losunarbókhalds Umhverfis- og orkustofnunar um nýja skýrslu um losun gróðurhúsalofttegunda hér á landi.
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu um að íslenska ríkið hafi gerst brotlegt krefst viðbragða en mögulega án þess að breyta stjórnarskrá segir fyrrverandi dómari við dómstólínn.
Aðhald eða bókhaldsbrellur - sýn stjórnmálamanna á nýbirta fjármálaáætlun veltur á því hvaðan er horft.
Børsen, hin fjögurhundruðára gamla kauphöll Dana brann í dag, næstum til grunna. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur segir að skaðinn sé gríðarlegur fyrir Dani. Húsið komi heilmikið við sögu Íslands.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.