
Morgunglugginn
Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.
Margir íbúar og velunnarar Raufarhafnar eru ósáttir við hugmyndir um að selja félagsheimili bæjarins, Hnitbjörg, og verið er að safna undirskriftum til að mótmæla mögulegri sölu á byggingunni. Einnig eru umdeild áform um að rífa gamla mjölskemmu Síldarverksmiðja ríkisins. Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, var á línunni.
Guðrún Hulda Pálsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Bændablaðsins, rýndi í töluna 71, sem virðist hentar sérstaklega vel til illdeilna, að minnsta kosti þegar um lagagreinar er að ræða, og blessaða sauðkindina, hvernig og hvar hagstæðast sé að slátra henni á haustin, verka og koma svo í innkaupakerrur neytenda.
Í lok þáttar sagði Vera frá nýjustu uppgötvunum dýrafræðinga um tísku meðal simpansa.
Tónlist:
Sommar - KUSK
Kindin Einar - Hjálmar
Cars and Girls - Sykur með GDRN

Fréttaþáttur á samtengdum rásum þar sem teknar eru fyrir helstu fréttir dagsins.
Umsjón: Helgi Seljan og Vera Illugadóttir.